| Ingibjörg's profileIngibjörg ÞórðardóttirPhotosBlogLists | Help |
|
Ingibjörg ÞórðardóttirMarch 13 paraskevidekatriaphobiaNú borgar sig fyrir alla landsmenn að halda sig heima. Ef allir standa saman um það að fara ekki út úr húsi í dag minnkar það líkurnar á því að hræðilegir hlutir gerist á þessum degi. Það er reyndar mikill snjór í fjallinu fyrir ofan mig og snjóflóðavarnargarðurinn nær ekki nógu langt í austur til að vernda húsið mitt. Kannski þarf ég að endurskoða þetta eitthvað.
Alls ekki að vera heima í dag. Koma sér út úr húsi hið fyrsta. November 10 Hlátur eða gráturÉg veit ekki alveg hvort maður á að hlægja eða gráta að þessu myndbandi:
November 09 Langar að vera meðÞrátt fyrir að einstaka sinnum hafi það gerst að mig langi til að flytja á höfuðborgarsvæðið þá hefur það aldrei verið rætt á mínu heimili af neinni alvöru. Núna á þessum hræðilegu tímum hellist þetta yfir mig. Mikið vildi ég geta tekið þátt í þeim mótmælum sem fram fara í Reykjavík, mætt á borgarafundina í Iðnó og sýnt andúð mína á ríkisstjórninni og auðmönnunum í verki. Þess í stað sit ég hér í suddanum og finnst ég engu máli skipta og ekki geta gert neitt. En þetta er auðvitað ekki rétt. Auðvitað ættu við einnig að mótmæla á landsbyggðinni. Eigum við ekki fulltrúa í þessari ríkisstjórn og voru það ekki við sem kusum þá? Nú þarf sem sagt bara góðar hugmyndir. Hvar ættum við að mótmæla og með hvaða hætti? Mundi einhverjir ráðamenn koma og hlusta á okkur og svara okkar spurningum? November 03 Eva María kom leiðinlega á óvartÉg horfði á þáttinn sunnudagskvöld með Evu Maríu í gærkvöldi. Þar ræddi hún við Erlu Bolladóttur um uppgjör hennar við Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Hún sagði m.a. frá því að hún hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi þegar hún var í gæsluvarðhaldi. Eva María sem er yfirleitt mjög góð í þessum þáttum spurði þá "og veittir þú mótspyrnu" eða eitthvað álíka. Ekki skil ég hver er tilgangur þessarar spurningar hjá Evu Maríu. Hvernig á niðurbrotin kona sem er fangi á að veita mótspyrnu? Hverju hefði það breytt? Lítur Eva María eitthvað öðrum augum á glæpinn ef fórnarlambið veitti mótspyrnu? Hræðilegt klúður hjá Evu Maríu og mér finnst hún skulda Erlu Bolladóttur afsökunarbeiðni. August 29 LeiðistNú man ég af hverju mér fannst ekkert sérlega gaman að vera í fæðingarorlofi. Núna er ég aðeins að kenna eitt fag í VA og Háskólinn er ekki byrjaður. Klukkan átta á morgnana fara krakkarnir í skólann og Arnar í vinnuna. Ég er þá ein heima og ó mæ god hvað þetta á ekki við mig. Þvottur og óhreinindi garga á mig svo ég sé mig knúna til að stunda heimilisstörf sem mér finnst öll ógeðslega leiðinleg. Svo þegar búið er að setja í vélina eða þurrka af eða eitthvað þá sest ég niður og kveiki á sjónvarpinu. Á morgnana er boðið uppá Ópru, Dr. Phil, Rachel Ray, Glæstar vonir og einhverja hræðilega spænska sápuóperu. Einhvern veginn dettur mér ekkert gáfulegt í hug að gera og verð bara óróleg í höfðinu, hugsa í hringi og kem engu í verk. Get ekki beðið eftir að Háskólinn byrji. July 03 VonHryssan sem Einar í Skálateigi lánaði okkur er fimm vetra og heitir Von. Hún er alveg frábær og hefur verið mikið notuð. Bjössi Hákonarson var á Hólum í 10 daga og heillaðist alveg af merinni og notaði hana mikið. Það er allt annað líf að hafa annan góðan hest með Stubbi því það eru allir orðnir uppgefnir á að reyna að nota Blesa kallinn. Ætli við fellum hann ekki haust.
Ég skrifað hér um daginn færslu undir heitinu "Loksins vont veður". Ég hefði betur átt að þegja því veðrið er búið að verö ömurlegt síðan. Undanfarna daga hefur ringt ógeðslega mikið og við því ekki nennt á hestbak. Verðum að bæta úr því áður en við förum til Danmerkur. Það er búið að ákveða að fljúga frá Egilsstöðum og allir rosa ánægðir með það. Hægt verður að fylgjast með Danaförunum á http://tivoliblogg.blogcentral.is/ June 21 Líf og fjörNú þegar við förum inn á Hóla á hverjum degi til að setja hesta í sveltihólf, taka hesta úr sveltihólfi eða einfaldlega ríða út þá erum orðnir miklir sérfræðingar í fuglalífinu í Teignum og Fannardal. Þær tegundir sem verða á vegi okkar daglega eru: stelkur, skógarþröstur, spói, hrossagaukur, heiðlóa, kría, jaðrakan, hettumáfur, maríuerla, þúfutittlingur, músarindill, auðnutittlingur og grágæs. Það bókstaflega iðar allt að lífi í sveitinni okkar fögru. Mamma og pabbi sáu tófu um daginn og ekki er svo langt síðan ég sá hreindýr. Nú bíðum við spennt eftir því að sjá ísbjörn. Þegar það gerist ætla ég ekki að hringja í lögregluna. |
|
|||
|
|